Fara í innihald

Pep Guardiola

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Pep Guardiola
Upplýsingar
Fullt nafn Josep Guardiola Sala
Fæðingardagur 18. janúar 1971 (1971-01-18) (55 ára)
Fæðingarstaður    Santpedor, Spánn
Hæð 1,8 m
Leikstaða Varnasinnaður miðjumaður
Yngriflokkaferill
1984-1990 FC Barcelona
Meistaraflokksferill1
Ár Lið Leikir (mörk)
1988-1990 FC Barcelona C 8 (1)
1990-1992 FC Barcelona 53 (5)
1990-2001 FC Barcelona 263 (6)
2001-2002 Brescia Calcio 11 (2)
2002-2003 A.S. Roma 4 (0)
2003 Brescia Calcio 13 (1)
2003-2005 Al-Ahli SC 36 (5)
2005-2006 Dorados 10 (1)
Landsliðsferill
1991
1991-1992
1992-2001
1995-2005
Spánn U21
Spánn U23
Spánn
Katalónía
2 (0)
12 (2)
47 (5)
7 (0)
Þjálfaraferill
2007-2008
2008-2012
2013-2016
2016-2026
FC Barcelona B
FC Barcelona
Bayern München
Manchester City

1 Leikir með meistaraflokkum og mörk
talið í aðaldeild liðsins.

Josep "Pep" Guardiola Sala er spænskur knattspyrnuþjálfari og fyrrum leikmaður.

Guardiola á met yfir flesta sigurleiki í röð La Liga, Bundesliga og ensku úrvalsdeildinni. Sem leikmaður var hann lengst af hjá FC Barcelona og vann deildina sex sinnum með félaginu. Hann var í landsliði Spánar og Katalóníu. Hann spilaði sem varnarsinnaður miðjumaður.

Guardiola er sigursæll þjálfari og vann þrefalt á fyrsta tímabilinu með Barcelona; La Liga, Meistaradeild Evrópu og Copa del Rey, Með Bayern München sigraði hann deildina þau þrjú tímabil sem hann var þar.

Guardiola stýrði Manchester City í 10 ár og vann hann deildina sex sinnum ásamt átta bikartitlum. Tímabilið 2022-2023 vann hann Meistaradeildina með City. Áberandi var samkeppni milli hans og Jürgen Klopp stjóra Liverpool FC. [1]

Árið 2025 stýrði hann 1000. leik sínum sem knattspyrnustjóri og vann hann 716 leiki af þeim fjölda. [2]

Guardiola hefur stutt sjálfstæði Katalóníu.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. An architect who redefined football - why Guardiola stands apart BBC, sótt 24. maí 2026
  2. 1,000 games in, Guardiola has new BBC, sótt 10. nóvember 2025
Pep Guardiola
Morty Proxy This is a proxified and sanitized view of the page, visit original site.