Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Master of Reality er þriðja breiðskífa ensku hljómsveitarinnar Black Sabbath . Gítarleikari sveitarinnar Tony Iommi stillti gítarinn mjög lágt til að auðveldara væri að slá á strengina en hann hafði misst framan af fingrum í slysi. Útkoman var að tónlistin varð þyngri. [1] Platan hafði áhrif á mismunandi stefnur þungarokks eins og dómsdagsmálm, stóner-rokk og sludge metal. Lagið Sweet Leaf er óður til marijúana og lagið After Forever fjallar um kristni. Iommi spilar á píanó og flautu í ballöðunni Solitude.
Platan komst í 8. sæti á Billboard-listann í Bandaríkjunum og var eina Sabbath platan til þess að gera það þar til endurkomuplatan 13 kom út. [2]
Hlið 1:| Titill |
|---|
| 1. | „Sweet Leaf“ | 5:05 |
|---|
| 2. | „After Forever“ | 5:27 |
|---|
| 3. | „Embryo“ | 0:28 |
|---|
| 4. | „Children of the Grave“ | 5:18 |
|---|
Hlið 2:| Titill |
|---|
| 5. | „Orchid“ | 1:31 |
|---|
| 6. | „Lord of This World“ | 5:27 |
|---|
| 7. | „Solitude“ | 5:07 |
|---|
| 8. | „Into the Void“ | 6:13 |
|---|
| Samtals lengd: | 34:29 |
|---|