Al Pacino
Al Pacino | |
|---|---|
Al Pacino árið 2016. | |
| Upplýsingar | |
| Fæddur | Alfredo James Pacino 25. apríl 1940 New York-borg, Bandaríkjunum |
| Þjóðerni | Bandarískur |
| Ár virkur | 1967– |
| Maki | Lyndall Hobbs (1989–1996)[1] Beverly D'Angelo (1997–2003) Lucila Polak (2008–2018) |
| Börn | 4 |
| Óskarsverðlaun | |
| Besti leikari 1992 Konuilmur |
Alfredo James „Al“ Pacino (f. 25. apríl 1940) er bandarískur leikari, leikstjóri og handritshöfundur. Pacino er þekktur fyrir ákafan leik sinn í leikhúsum og kvikmyndum og er gjarnan talinn meðal bestu leikara allra tíma.[a] Hann hefur verið virkur í leiklist í rúma fimm áratugi og hefur á þeim tíma unnið fjölda verðlauna, þar á meðal Óskarsverðlaun, tvenn Tony-verðlaun og tvenn Emmy-verðlaun. Hann hefur jafnframt unnið fern Golden Globe-verðlaun, BAFTA-verðlaun og tvenn Screen Actors Guild-verðlaun, auk þess sem hann fékk Cecil B. DeMille-verðlaunin árið 2001, verðlaun Kvikmyndastofnunar Bandaríkjanna fyrir æviafrek árið 2007, þjóðarorðu fyrir listir árið 2011 og heiðursverðlaun Kennedy-miðstöðvarinnar árið 2016.[8][9][10][11] Kvikmyndir Pacinos hafa samanlagt þénað rúma þrjá milljarða bandaríkjadala á heimsvísu.[12]
Pacino byrjaði feril sinn í leiklist í litlum leikhúsum í New York-borg en vann sig upp í stærri sýningar á Broadway.[13] Pacino nam leiklist hjá HB Studio og Actors Studio þar sem Charlie Laughton og Lee Strasberg kenndu honum. Pacino hlaut Óskarsverðlaun sem besti leikarinn fyrir leik sinn í kvikmyndinni Konuilmur (1992). Hann hefur einnig verið tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sín í myndunum Guðfaðirinn (1972), Serpico (1973), Guðfaðirinn II (1974), Á heitum degi (1975), Sekur eða saklaus (1979), Dick Tracy (1990), Fasteignabraskarar (1992) og Írinn (2019). Meðal annarra frægra kvikmynda með Pacino má nefna Skelfing í Nálargarðinum (1971), Fuglahræðan (1973), Maðurinn með örið (1983), Losti (1989), Guðfaðirinn III (1990), Frankie og Johnny (1991), Leið Carlitos (1993), Í hita leiksins (1995), Donnie Brasco, Málsvari myrkrahöfðingjans (báðar 1997), Uppljóstrarinn, Sunnudagsleikurinn (báðar 1999), Svefnvana (2002), Nýliðinn (2003), Við þrettánda mann (2007), Einu sinni var í Hollywood (2019) og House of Gucci (2021).
Í sjónvarpi hefur Pacino leikið í ýmsum verkum í framleiðslu HBO, meðal annars þáttaröðinni Englar í Ameríku (2003) og You Don't Know Jack, ævisögumynd um Jack Kevorkian. Hann vann Emmy-verðlaun fyrir framúrskarandi leik í sjónvarpsþáttaröð eða kvikmynd fyrir bæði hlutverkin. Pacino lék aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Hunters (2020–23) hjá Amazon Prime Video. Hann hefur jafnframt leikið fjölmörg hlutverk í leikritum. Hann hefur tvisvar unnið Tony-verðlaun, fyrst fyrir leikritið Does a Tiger Wear a Necktie? (1969) og svo fyrir The Basic Training of Pavlo Hummel (1977). Hann lék jafnframt Sælokk í uppsetningu á Kaupmanninum í Feneyjum árið 2010 og í kvikmyndaútgáfu verksins frá 2004.
Frumraun Pacinos sem leikstjóra var heimildarmyndin Í leit að Ríkharði (1996), sem hann hlaut verðlaun Directors Guild of America fyrir framúrskarandi leikstjórn í heimildarmynd fyrir. Hann hefur síðan leikstýrt og leikið í myndunum Kínverskt kaffi (2000), Wilde Salomé (2011) og Salomé (2013). Árið 2006 heimilaði Pacino að andlit hans yrði notað í tölvuleiknum Scarface: The World Is Yours. Hann skrifaði endurminningar sínar, Sonny Boy, sem voru gefnar út af Penguin Press árið 2024.[14] Pacino hefur verið meðforseti Actors Studio frá árinu 1995.[15]
Kvikmyndaskrá
[breyta | breyta frumkóða]| Ár | Titill | Hlutverk | Athugasemdir | Tilv. |
|---|---|---|---|---|
| 1969 | Ég, Natalie (Me, Natalie) | Tony | [16] | |
| 1971 | Skelfing í Nálargarðinum (The Panic in Needle Park) | Bobby | [17] | |
| 1972 | Guðfaðirinn (The Godfather) | Michael Corleone | [18] | |
| 1973 | Fuglahræðan (Scarecrow) | Francis Lionel „Lion“ Delbuchi | [19] | |
| Serpico | Frank Serpico rannsóknarlögreglumaður | [20] | ||
| 1974 | Guðfaðirinn II (The Godfather Part II) | Michael Corleone | [21] | |
| 1975 | Á heitum degi (Dog Day Afternoon) | Sonny Wortzik | [22] | |
| 1977 | Bobby Deerfield | Bobby Deerfield | [23] | |
| 1979 | Sekur eða saklaus (...And Justice for All) | Arthur Kirkland | [24] | |
| 1980 | Cruising | Steve Burns | [25] | |
| 1982 | Rithöfundurinn (Author! Author!) | Ivan Travalian | [26] | |
| 1983 | Maðurinn með örið (Scarface) | Tony Montana | [27] | |
| 1985 | Byltingin (Revolution) | Tom Dobb | [28] | |
| 1989 | Losti (Sea of Love) | Frank Keller rannsóknarlögreglumaður | [29] | |
| 1990 | The Local Stigmatic | Graham | [30] | |
| Dick Tracy | Alphonse „Big Boy“ Caprice | [31] | ||
| Guðfaðirinn III (The Godfather Part III) | Michael Corleone | [21] | ||
| 1991 | Frankie og Johnny (Frankie and Johnny) | Johnny | [32] | |
| 1992 | Glengarry Glen Ross | Richard „Ricky“ Roma | [33] | |
| Konuilmur (Scent of a Woman) | Frank Slade | [34] | ||
| 1993 | Leið Carlitos (Carlito's Way) | Carlito „Charlie“ Brigante | [35] | |
| 1995 | Sveltur sitjandi kráka (Two Bits) | Afi | [36] | |
| Í hita leiksins (Heat) | Vincent Hanna lautinant | [37] | ||
| 1996 | Spilling (City Hall) | John Pappas | [38] | |
| 1997 | Donnie Brasco | Benjamin „Lefty“ Ruggiero | [39] | |
| Málsvari myrkrahöfðingjans (The Devil's Advocate) | John Milton / Satan | [40] | ||
| 1999 | Uppljóstrarinn (The Insider) | Lowell Bergman | [41] | |
| Sunnudagsleikurinn (Any Given Sunday) | Tony D'Amato | [42] | ||
| 2000 | Kínverskt kaffi (Chinese Coffee) | Harry Levine | Einnig leikstjóri | [43] |
| 2002 | Svefnleysi (Insomnia) | Will Dormer | [44] | |
| Simone | Viktor Taransky | [45] | ||
| Kunningjar (People I Know) | Eli Wurman | [46] | ||
| 2003 | Nýliðinn (The Recruit) | Walter Burke | [47] | |
| Gigli | Starkman | [48] | ||
| 2004 | Kaupmaðurinn í Feneyjum (The Merchant of Venice) | Sælokk | [49] | |
| 2005 | Two for the Money | Walter Abrams | [50] | |
| 2007 | 88 Minutes | Dr. Jack Gramm | [51] | |
| Við þrettánda mann (Ocean's Thirteen) | Willie Bank | [52] | ||
| 2008 | Righteous Kill | David „Rooster“ Fisk rannsóknarlögreglumaður | [53] | |
| 2011 | The Son of No One | Charles Stanford rannsóknarlögreglumaður | [54] | |
| Jack and Jill | Hann sjálfur | [55] | ||
| 2012 | Stand Up Guys | Val | [56] | |
| 2013 | Salomé | Heródes konungur | Einnig leikstjóri og höfundur | [57] |
| 2014 | Manglehorn | A.J. Manglehorn | [58] | |
| The Humbling | Simon Axler | Einnig framleiðandi | [59] | |
| 2015 | Danny Collins | Danny Collins | [60] | |
| 2016 | Misconduct | Abrams | [61] | |
| 2017 | The Pirates of Somalia | Seymour Tolbin | [62] | |
| Hangman | Ray Archer rannsóknarlögreglumaður | [63] | ||
| 2019 | Einu sinni var í Hollywood (Once Upon a Time in Hollywood) | Marvin Schwarz | [64] | |
| Írinn (The Irishman) | Jimmy Hoffa | [65] | ||
| 2021 | American Traitor: The Trial of Axis Sally | James Laughlin | ||
| House of Gucci | Aldo Gucci | |||
| 2023 | Knox Goes Away | Xavier | ||
| 2024 | Modì, Three Days on the Wing of Madness | Maurice Gangnat | Einnig framleiðandi | [66] |
| 2025 | The Ritual | Faðir Theophilus Riesinger | [67] | |
| Billy Knight | Billy Knight | [68] | ||
| Dead Man's Wire | M.L. Hall | [69] | ||
| In the Hand of Dante | Carmine frændi | [70] | ||
| Easy's Waltz | Mickey Albano | [71] | ||
| 2026 | Killing Castro | [72] | ||
| Óvíst | Lear Rex | Rey Lear | Í eftirframleiðslu | [73] |
| Maserati: The Brothers | Í eftirframleiðslu | [74] | ||
| Father Joe | Í eftirframleiðslu | [75] |
Neðanmálsgreinar
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Rocca, Jane (30 júní 2017). „Lyndall Hobbs: I'm ready to remarry again at 64“. Sydney Morning Herald. Afrit af uppruna á 16 janúar 2025. Sótt 22 apríl 2025.
- ↑ „Pacino named 'greatest film star'“ (bresk enska). 5 maí 2003. Sótt 26 maí 2025.
- ↑ „Five of the best al Pacino movies“. 25 apríl 2025. Afrit af uppruna á 25 apríl 2025. Sótt 26 apríl 2025.
- ↑ Muir, Hugh (6 maí 2003). „Pacino, godfather of movie stars“. The Guardian. Afrit af uppruna á 29. desember 2020. Sótt 22 apríl 2025.
- ↑ Marchese, David (5 október 2024). „Al Pacino Is Still Going Big“. The New York Times. Afrit af uppruna á 5 október 2024. Sótt 5 október 2024.
- ↑ Travis, Ben (20. desember 2022). „Empire's 50 Greatest Actors Of All Time List, Revealed“. Empire. Afrit af uppruna á 29. desember 2022. Sótt 22 apríl 2025.
- ↑ Stevenson, Rick (15 nóvember 2024). „The 20 Best Actors Of All Time“. Looper. Afrit af uppruna á 11 apríl 2025. Sótt 22 apríl 2025.
- ↑ „Ready for My deMille: Profiles in Excellence – Al Pacino, 2001“. Golden Globe Awards. júní 2020. Afrit af uppruna á 1 janúar 2023. Sótt 1 janúar 2023.
- ↑ „Pacino 'overwhelmed' by AFI honor“. The Hollywood Reporter. 11 júní 2007. Afrit af uppruna á 1 janúar 2023. Sótt 1 janúar 2023.
- ↑ „Al Pacino honoured at White House“. BBC News (bresk enska). 14 febrúar 2012. Afrit af uppruna á 16 júní 2020. Sótt 13 apríl 2020.
- ↑ „Kennedy Center Honors: Al Pacino, The Eagles, James Taylor Among Those Feted“. The Hollywood Reporter. 4. desember 2016. Afrit af uppruna á 1 janúar 2023. Sótt 1 janúar 2023.
- ↑ „Al Pacino“. The Numbers. Sótt 23 júlí 2025.[óvirkur tengill]
- ↑ „This Month in Theatre History“. American Theatre. 7 apríl 2025. Afrit af uppruna á 13 febrúar 2026. Sótt 6. mars 2026.
- ↑ „Sonny Boy“. Penguin Press. 15 október 2024. Sótt 8. mars 2026.
- ↑ „The Actors Studio Leadership“. Actors Studio. 12. mars 2026. Sótt 12. mars 2026.
- ↑ Yule, Andrew (1992). Al Pacino: A Life On the Wire. New York: S.P.I. Books. bls. 27. ISBN 9781561711611.
- ↑ Taylor, Francis (25 júlí 1971). „Film on Drug Users Does Not Preach“. The Corpus Christi Caller-Times. Corpus Christi, Texas. bls. 61. Afrit af uppruna á 22 október 2018. Sótt 19. september 2015 – gegnum Newspapers.com.

- ↑ Chind, Ben (29 október 2014). „Godfather role was an offer Al Pacino could refuse“. The Guardian. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ „AFI Catalogue — Scarecrow“. American Film Institute. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Gleiberman, Owen (28 október 2017). „Film Review: 'Frank Serpico'“. Variety. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- 1 2 Dreher, Beth (17 febrúar 2016). „10 Mind-Blowing Facts About 'The Godfather'“. Reader's Digest. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ „The Marquee“. The Salina Journal. Salina, Kansas. 11 nóvember 1979. bls. 21. Afrit af uppruna á 4. mars 2016. Sótt 19. september 2015 – gegnum Newspapers.com.

- ↑ Brenner, Marie; Kornbluth, Jesse (nóvember 1977). „Review: Pacino as Garbo“. Texas Monthly. Emmis Communications. bls. 158. ISSN 0148-7736.
- ↑ Walz, Steve K. (26 október 1979). „Pacino Defies 'And Justice For All'“. The Paris News. Paris, Texas. bls. 22. Afrit af uppruna á 4. mars 2016. Sótt 19. september 2015 – gegnum Newspapers.com.

- ↑ Chatenever, Rick (17 febrúar 1980). „Controversial 'Cruising': Painting The Screen With Blood“. Santa Cruz Sentinel. Santa Cruz, California. bls. 44. Afrit af uppruna á 4. mars 2016. Sótt 19. september 2015 – gegnum Newspapers.com.

- ↑ Chatenever, Rick (25 júní 1982). „'Kramer vs. Kramer' Played For Laughs“. Santa Cruz Sentinel. Santa Cruz, California. bls. 19. Afrit af uppruna á 4. mars 2016. Sótt 19. september 2015 – gegnum Newspapers.com.

- ↑ Jacobs, Tom (14. desember 1983). „'Scarface' hype doesn't do justice to film“. The San Bernardino County Sun. San Bernardino, California. bls. 49. Afrit af uppruna á 22 október 2018. Sótt 19. september 2015 – gegnum Newspapers.com.

- ↑ Canby, Vincent (25. desember 1985). „The Screen: 1770s Epic: 'Revolution'“. The New York Times. Afrit af uppruna á 7 júlí 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ „Salina Movie Reviews“. The Salina Journal. Salina, Kansas. 16. september 1989. bls. 32. Afrit af uppruna á 22 október 2018. Sótt 19. september 2015 – gegnum Newspapers.com.

- ↑ Gordon, Bette (1 október 1990). „Al Pacino by Bette Gordon“. Bomb. 33. tölublað. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Urbland, Kate (15 júní 2015). „Dick Tracy Turns 25: Why Has Everyone Forgotten the Original Prestige Comic Book Movie?“. Vanity Fair. Afrit af uppruna á 30 apríl 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Turan, Kenneth (11 október 1991). „Movie Review: Boy Meets Grill, Gets Girl“. Los Angeles Times. Afrit af uppruna á 28. september 2015. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Garner, Jack (2 október 1992). „Intense 'Glengarry' in an easy Sell“. North Hills News Record. North Hills, Pennsylvania. bls. 28. Afrit af uppruna á 1 ágúst 2015. Sótt 19. september 2015 – gegnum Newspapers.com.

- ↑ Hinson, Hal (23. desember 1992). „'Scent of a Woman' (R)“. The Washington Post. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Cormier, Roger (26. desember 2016). „13 Surprising Facts About Carlito's Way“. Mental Floss. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Hunter, Stephen (2 febrúar 1996). „'Two Bits': Fine acting can't hide grand allusion“. The Baltimore Sun. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Coyle, Jake (5 maí 2017). „Michael Mann on the restored Heat, 22 years later“. Toronto Star. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Fine, Marshall (16 febrúar 1996). „'City Hall' stands on strength of acting, not script“. The San Bernardino County Sun. San Bernardino, California. Gannet News Service. bls. 61. Afrit af uppruna á 1 ágúst 2015. Sótt 19. september 2015 – gegnum Newspapers.com.

- ↑ Jenny, Urs (15 maí 1997). „Filmkritik: "Donnie Brasco"“. Spiegel Online (þýska). Afrit af uppruna á 14 júní 2017. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ „Devil's Advocate (1997) - 19 worst fathers in film“. The Telegraph. Afrit af uppruna á 18 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Shales, Tom (15 október 1999). „At '60 Minutes,' Where There's Smoke, There's Ire“. The Washington Post. bls. C1. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Babao-Guballa, Cathy (6 maí 2000). „Film Review: Any Given Sunday - Lessons in the Game of Life“. The Philippine Star. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Gilvey, John Anthony (2011). Jerry Orbach, Prince of the City: His Way from "The Fantasticks" to "Law and Order". Applause Theatre & Cinema Books. bls. 142. ISBN 978-1-55783-919-0.
- ↑ „Insomnia: Sleepless in Alaska“. Toledo Blade. 24 maí 2002. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Foundas, Scott (16 ágúst 2002). „Simone“. Variety. Afrit af uppruna á 18 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Russell, Jamie (5 febrúar 2004). „People I Know (2004)“. BBC. Afrit af uppruna á 31 október 2019. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Pais, Arthur J (31 janúar 2003). „The Recruit isn't what it seems“. Rediff.com. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Leitch, Will; Grierson, Tim (2 apríl 2018). „Every Al Pacino Performance, Ranked“. Vulture.com. Afrit af uppruna á 18 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Applebaum, Stephen (30 nóvember 2004). „Movies: Interviews: Al Pacino“. BBC. Afrit af uppruna á 21 október 2016. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Baumgarten, Marjorie (7 október 2005). „Two for the Money“. The Austin Chronicle. Afrit af uppruna á 18 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Rainer, Peter (18 apríl 2008). „For '88 Minutes,' Al Pacino hams it up“. The Christian Science Monitor. Afrit af uppruna á 18 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Sen, Raja (9 júní 2007). „Thirteenth time's the charm“. Rediff.com. Afrit af uppruna á 6. mars 2014. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Spicer, Andrew (2010). Historical Dictionary of Film Noir. Scarecrow Press. bls. 69. ISBN 978-0-8108-7378-0.
- ↑ Wazir, Burhan. „Now Playing in Doha! : The Son of No One“. Doha Film Institute. Afrit af uppruna á 18 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Scott, A. O. (10 nóvember 2011). „Going Over the Top, Then Downhill“. The New York Times. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Marks, Scott (30 janúar 2013). „Interview: Fisher Stevens is a stand-up guy“. San Diego Reader. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Kenny, Glenn (29. mars 2018). „Review: Al Pacino's Journey With Wilde's 'Salomé'“. The New York Times. Sótt 17 janúar 2023.
- ↑ O'Sullivan, Michael (9 júlí 2015). „Review: 'Manglehorn' is a misfire for indie director David Gordon Green“. The Washington Post. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Foundas, Scott (29 ágúst 2014). „Venice Film Review: 'The Humbling'“. Variety. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Lewis, Hilary (19. mars 2015). „Danny Collins': Jennifer Garner, Writer-Director Dan Fogelman Reveal Their Own Motivational Letters“. The Hollywood Reporter. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Keogh, Tom (4 febrúar 2016). „'Misconduct': Crime thriller takes too many wrong turns“. The Seattle Times. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ „Al Pacino Joins Cast of Somali Drama 'Where the White Man Runs Away' (Exclusive)“. Hollywood Reporter. 11 febrúar 2016. Sótt 21 febrúar 2017.
- ↑ Scheck, Frank (21. desember 2017). „'Hangman': Film Review“. The Hollywood Reporter. Afrit af uppruna á 17 nóvember 2018. Sótt 17 nóvember 2018.
- ↑ Kroll, Justin (7 júní 2018). „Al Pacino Joins Quentin Tarantino's Manson Movie“. Variety. Afrit af uppruna á 18 júní 2018. Sótt 7 júní 2018.
- ↑ Bell, Breanna (31 júlí 2019). „Martin Scorsese's 'The Irishman' Trailer Teams Robert De Niro, Al Pacino and Joe Pesci“. Variety. Afrit af uppruna á 31 júlí 2019. Sótt 31 júlí 2019.
- ↑ Vivarelli, Nick (27. september 2023). „Johnny Depp Starts Shooting 'Modì' in Hungary, With Italy's Luisa Ranieri Joining Al Pacino and Riccardo Scamarcio in Cast“. Variety. Sótt 27. september 2023.
- ↑ Ritman, Alex (23 apríl 2024). „Al Pacino, Dan Stevens to Play Troubled Priests in Exorcism Horror 'The Ritual' (EXCLUSIVE)“. Variety. Sótt 23 apríl 2024.
- ↑ Hipes, Patrick (22. september 2022). „Al Pacino To Star In 'Billy Knight' Movie Alongside Charlie Heaton And Diana Silvers“. Deadline. Sótt 10 apríl 2024.
- ↑ D'Alessandro, Anthony (28 febrúar 2025). „Al Pacino Joining Gus Van Sant Hostage Thriller 'Dead Man's Wire'“. Deadline (bandarísk enska). Sótt 28 febrúar 2025.
- ↑ Vivarelli, Nick (17 nóvember 2023). „Julian Schnabel Reveals Al Pacino, John Malkovich, Benjamin Clementine, Sabrina Impacciatore Appear in Next Film 'In the Hand of Dante' (EXCLUSIVE)“. Variety. Sótt 17 nóvember 2023.
- ↑ Kroll, Justin (24 febrúar 2023). „Nic Pizzolatto Sets Directing Debut With 'Easy's Waltz'; Vince Vaughn, Michelle Monaghan, Al Pacino & Simon Rex To Star“. Deadline (bandarísk enska). Sótt 28 febrúar 2025.
- ↑ Vlessing, Ethan (4. desember 2023). „Al Pacino, Diego Boneta and Xolo Maridueña Star in 'Killing Castro' Thriller“. Hollywood Reporter. Sótt 10 apríl 2024.
- ↑ Geisinger, Gabriella (5 ágúst 2024). „Al Pacino starrer 'Lear Rex' adds cast, production to begin next week“. Kemps Film and TV Production Services Handbook. Sótt 18. september 2024.
- ↑ Vivarelli, Nick (15 maí 2025). „Al Pacino Joins Bobby Moresco-Directed Biopic 'Maserati: The Brothers'“. Variety (bandarísk enska). Sótt 5 júní 2025.
- ↑ Barry, Ben (22 október 2025). „Al Pacino spotted filming new mob movie Father Joe in Paris – Discover SWNS“. SWNS (enska). Afrit af uppruna á 5 nóvember 2025.