1582
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1582 (MDLXXXII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Eldgos varð við Eldey.
- Elstu heimildir um prjón á Íslandi.
- Prentun Guðbrandsbiblíu hófst (að öllum líkindum).
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Eggert Hannesson lögmaður í Bæ á Rauðasandi (f. 1515).
- Gleraugna-Pétur Einarsson, prestur og sýslumaður í Hjarðarholti.
Opinberar aftökur
[breyta | breyta frumkóða]- Henrik (eða Hinrik) Kules, frá Þýskalandi, dæmdur til dauða á Kópavogsþingi og tekinn af lífi, fyrir að hafa stungið Bjarna Eiríksson til bana á Bessastöðum á jólanótt.[1]
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 15. janúar - Rússland lét Eistland og Lífland af hendi við Pólsk-litháíska samveldið.
- 24. febrúar - Gregoríus XIII páfi innleiddi gregoríska tímatalið. Í Póllandi, Ítalíu, Portúgal og Spáni var stokkið yfir tíu daga og dagurinn eftir 4. október var því 15. október.
- 14. apríl - Edinborgarháskóli var stofnaður sem the Tounis College.
- 17. maí - Toyotomi Hideyoshi, stríðherra í Japan, réðst á hersveitir Shimizu Muneharu sem var undir Oda Nobunaga og hafði tvöfalt fleiri hermenn.
- 21. júní - Stríðsherrann Oda Nobunaga var ráðinn af dögum í Japan. Muneharu gaf eftir Takamatsu-kastala og framdi sjálfsvíg með seppuku-aðferð.
- 24. nóvember - William Shakespeare giftist Anne Hathaway í Stratford-upon-Avon.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Upphaf Leyndarskjalasafns danska konungsins.
- 163 manneskjur voru brenndar fyrir galdra í Osnabrück í Þýskalandi.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 23. desember - Severo Bonini, ítalskt tónskáld (d. 1663).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 21. júní - Oda Nobunaga, lénsherra í Japan (f. 1534).
- 15. október - Teresa frá Ávila, spænsk nunna (f. 1515)
- Wu Cheng'en, kínverskur rithöfundur (f. 1500).
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Skrá á vef rannsóknarverkefnisins Dysjar hinna dauðu, á slóðinni https://dhd.hi.is/gogn/Info.pdf, sótt 15.2.2020.