1479
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1479 (MCDLXXIX í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Magnús Eyjólfsson varð Skálholtsbiskup.
- Hrafn Brandsson varð lögmaður norðan og vestan.
- Lagarfljótsormsins fyrst getið í ritaðri heimild.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Solveig Þorleifsdóttir í Víðidalstungu og á Miklabæ (f um 1415).
- Ólöf ríka Loftsdóttir á Skarði (f. um 1410).
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 20. janúar - Ferdinand 2. varð konungur Aragóníu og stýrði þá ásamt konu sinni, Ísabellu drottningu Kastilíu, mestöllum Íberíuskaga.
- 25. janúar - Lýðveldið Feneyjar og Ottómanveldið skrifuðu undir friðarsamning eftir 16 ára stríð.
- 2. apríl - Konungsríkið Bóhemía og Konungsríkið Ungverjaland skrifuðu undir friðarsamning eftir 2 ára stríð.
- 1. júní - Kaupmannahafnarháskóli var stofnaður.
- 7. ágúst - Maximilian hertogi Búrgúnd hrundi árás Frakka á Búrgúnd.
- 13. október - Ungverjar sigruðu her Tyrkja og Transylvana í Transylvaníu og létust um 10.000 Tyrkir.
- 5. nóvember - Ottóman-Tyrkir réðust á grísku eyjuna Zakynþos, þá á valdi Feneyinga, og eyddu mörgum kirkjum og byggingum.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 15. júní - Lisa del Giocondo, talin fyrirmyndin að Mónu Lísu (d. 1542).
- 6. nóvember - Jóhanna Kastilíudrottning (Jóhanna vitskerta) (d. 1555).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 20. janúar - Jóhann 2., konungur Aragóníu (f. 1397).